Hæ ég heiti Einar og ég er fjölskyldu og barna ljósmyndari

"Ég fékk myndavél í fermingargjöf í staðin fyrir utanlandsferð"

Fyrsta árið mitt með myndavélina fór ég ferðalag í kringum Ísland og lærði þá vel hana. Með hverjum áfangastaðnum varð ég betri að ramma inn hluti, að læra hvernig er hægt að leika sér með ljós og mikilvægast af öllu að fanga augnablik. Ég fattaði fljótt að mér finnst gaman að mynda fólk, sérstaklega fjölskyldur. Ég er útskrifaður úr ljósmyndabraut Tækniskólans og hef 7 ára reynslu á bak við myndavélina.